Fara í efni

Verkefni 1: Staðarbjargavík

Bætt aðgengi í Staðarbjargavík við Hofsós með gerð útsýnispalla, stíga og stiga í með handriði. Markmið verkefnisins er að bæta aðgengi, stýra umferð um svæðið, bæta öryggi ferðamanna og vernda svæðið fyrir átroðningi.

Helstu verkþættir: Hönnun og deiliskipulagi er lokið við Staðarbjargavík. Næstu skref eru framkvæmdir við stígagerð, byggingu útsýnispalla og stiga niður í björgin.

Verkefni 2: Hólar í Hjaltadal

Uppbygging hins sögulega staðar Hóla í Hjaltadal sem áfangastaðar fyrir ferðamenn. Markmiðið er að bæta vegvísa, gönguleiðir, upplýsingagjöf, bílastæði, salernisaðstöðu, sem og að vernda minjar og náttúru.

Helstu verkþættir: Fyrsti fasi er hönnunarvinna sem staðið hefur yfir og næsti fasi eru framkvæmdir á svæðinu.

Verkefni 3: Glaumbær

Úrbætur á aðkomu ferðamanna í Glaumbæ. Markmiðið er að bæta aðkomu ferðamanna í Glaumbæ með það að leiðarljósi að bæta öryggi ferðamanna og annarra vegfarenda um svæðið.

Helstu verkliðir: Deiliskipulag og hönnun bílastæða við Glaumbæ og síðar framkvæmdir á verkinu.

Verkefni 4: Kakalaskáli

Bæta aðgengi og áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu í kringum Kakalaskála, sem er orðinn fjölfarinn ferðamannastaður.

Helstu verkliðir: Gerð göngustíga, merkingar, hönnun og gerð nýrra listaverka o.fl.

Verkefni 5: Austurdalur

Bæta aðgengi og aðstöðu í Austurdal í Skagafirði, sem er mikil náttúruperla sem þarf að varðveita og bæta aðgengi að. Markmið verkefnisins er bætt öryggi við flutningskláf yfir Eystri-Jökulsá á Skatastöðum, gerð bílastæða, göngustíga og upplýsingaskilta.

Helstu verkliðir: Verkið verður unnið í tveimur hlutum. Fyrst hönnunarvinna og síðar framkvæmdir.