Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

KYNNINGARFUNDIR UM GERÐ STEFNUMARKANDI STJÓRNUNARÁÆTLANA

Stjórnstöð ferðamála og Ferðamálastofa boða til 14 kynningarfunda um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana (Destination Management Plans-DMP) um landið.
www.nordurland.is
www.nordurland.is

Stjórnstöð ferðamála og Ferðamálastofa boða til 14 kynningarfunda um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana (Destination Management Plans-DMP) um landið.

Á fundunum munu fulltrúar Ferðamálastofu og Stjórnstöðvar ferðamála kynna verkþætti og tímalínu verkefnisins auk þess sem breski ráðgjafinn Tom Buncle mun fara ítarlega yfir eðli, markmið og tilgang slíkra verkefna og hvernig þau geta nýst inn 

í framtíðarskipulag og þróun svæða. Hagaðilar DMP verkefna eru breiður hópur s.s. sveitarfélög, markaðsstofur, atvinnuþróunarfélög, ferðaþjónar, ferðaklasar, upplýsingamiðstöðvar, aðrir þjónustuaðilar, öryggis- og viðbragðsaðilar, íbúar o.fl.

Nánari upplýsingar í PDF-skjali

Fundirnir verða sem hér segir:

Staður Dagur  Tími
Patreksfjörður Mánudagur 19/9           09:00
Suðureyri Mánudagur 19/9 14:00
Hólmavík Þriðjudagur 20/9 09:00
Borgarnes Þriðjudagur 20/9 14:00
Höfn í Hornafirði     Miðvikudagur 21/9 10:15
Egilsstaðir Miðvikudagur 21/9 16:00
Grundarfjörður  Fimmtudagur 22/9 09:00
Reykjavík, Fimmtudagur 22/9 15:00
Húsavík Mánudagur 10/10 09:30 
Blönduós Mánudagur 10/10  16:00
Akureyri Þriðjudagur 11/10 10:00
Selfoss Miðvikudagur 12/10 09:30
Vík í Mýrdal Miðvikudagur 12/10  15:00
Reykjanes Fimmtudagur 13/10 09:30

 

Hlekkur á skráningarblað er hér að neðan. Vinsamlegast skráið þátttöku í það minnsta 3 virkum dögum fyrir fund á ykkar svæði. Hver fundur er áætlaður 2-3 tímar. Skráðir þátttakendur fá sendar ítarlegri upplýsingar um dagskrá hvers fundar og nánari fundarstað. 

Skráning á kynningarfundi um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana