Fara í efni

    Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

    Mannamót

    Mannamót Markaðsstofa Landshlutanna er árleg ferðakaupstefna sem haldinn er af Markaðsstofum landshlutanna.

    Mannamót markaðsstofanna er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni.

    Markmið og tilgangur viðburðarins er að skapa vettvang þar sem landsbyggðarfyrirtæki fá tækifæri til að kynna sína þjónustu og vöruframboð fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á höfuðborgarsvæðinu. Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpa til við að mynda tengsl innan ferðaþjónustunnar. Gestum á Mannamótum gefst kostur á kynna sér það sem mismundi landshlutar eru að bjóða uppá.

    Einungis samstarfsfyrirtæki markaðsstofanna geta tekið þátt sem sýnendur í Mannamótum. Öllum er frjálst að mæta á viðburðinn og enginn aðgangseyrir er fyrir gesti.

    Allar nánari upplýsingar um skráningu, til sýnenda og til gesta má finna með því að smella hér.

    Myndir frá Mannamótum