Fara í efni

    Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

    Árið 2025 verður hægt að ferðast með flugi frá Akureyri um allan heim. Breska flugfélagið easyJet flýgur til London og Manchester út mars og byrjar vetrarflugin að nýju í nóvember. Edelweiss er með áætlunarflug yfir sumartímann til Zürich í Sviss ásamt því að leiguflug er á sama áfangastað yfir vetrartímann. Ferðaskrifstofan Verdi Travel selur flug bæði til Zürich og áfangastaði í Hollandi. Sjá flugáætlun hér neðar á síðunni.



    easyJet, flýgur beint frá Gatwick í London og Manchester flugvelli til Akureyrar frá október til apríl.

    Smelltu hér til að bóka

     



    Edelweiss
    býður beint flug til Akureyrar frá Zurich. Bókað er á vef Swiss Air.

    Smelltu hér til að bóka

     



    Icelandair flýgur reglulega á milli Reykjavíkur og Akureyrar frá Reykjavíkurflugvelli. Flugtíminn er aðeins 45 mínútur.

    Smelltu hér til að bóka

     

     



    Verdi Travel býður bæði stök flugsæti og skipulagðar ferðir með Transavia og Edelweiss, sem eru ekki með áætlunarflug til Akureyrar en fljúga fyrir ferðaskrifstofurnar Voigt Travel og Kontiki með reglubundnum hætti.

    Smelltu hér til að bóka

     

     




    Með easyJet til London og Manchester

    Á undanförnum misserum hafa tækifærin til ferðalaga með flugi frá Akureyri aldrei verið fjölbreyttari. Vorið 2023 tilkynnti easyJet um beint flug til Akureyrar í vetur, en félagið hefur flogið til Keflavíkur um árabil. Ári síðar, vorið 2024, var svo tilkynnt um að einnig yrði flogið frá Manchester til Akureyrar veturinn 2024-2025.

    Flogið verður frá Gatwick flugvellinum í London og flugvellinum í Manchester, en þaðan er hægt að taka tengiflug til að komast nánast hvert sem er í heiminum. Hægt er að kaupa flugferðir á heimasíðu easyJet og þar er hægt að bæta við tengiflugi með félaginu lengra út í heim. Einnig er hægt að nýta síður á borð við Dohop, til að kaupa tengiflug með öðrum flugfélögum.

    Flogið er alla þriðjudaga og laugardaga frá 5. nóvember 2024 til 26. apríl 2025.

    Athugið: Frá og með 2. apríl 2025 þurfa Íslendingar á leið til Bretlands að hafa sótt um rafrænt ferðaleyfi (ETA, Electronic Travel Authorisation) áður en þeir ferðast . Sjá nánari upplýsingar hér.

    Smelltu hér til þess að finna flug frá Akureyri
    Smelltu hér til að kynna þér það sem London hefur upp á að bjóða.

    © visitlondon.com/Antoine Buchet

     

    Sumarflug Edelweiss heldur áfram

    Sumrin 2024-2025 flaug svissneska flugfélagið Edelweiss beint til Akureyrar frá Zurich. Árangurinn af þeim flugferðum var góður og nú þegar er hægt að panta ferðir til Zurich sumarið 2025. Bóka þarf í gegnum heimasíðu Swiss: www.swiss.com/ch/en/homepage

     

    Fljúga beint frá Amsterdam og Zurich til Akureyrar

    Auk áætlunarflugs hafa tvær erlendar ferðaskrifstofur boðað komu sína til Akureyrar í vetur. Eftir jól mun Voigt Travel halda áfram með vetrarferðir frá Amsterdam. Þetta verður fjórði veturinn þar sem ferðaskrifstofan býður upp á ferðir til Norðurlands, en einnig hefur verið hægt að ferðast hingað með þeim á sumrin.

    Svissneska ferðaskrifstofan Kontiki býður upp á ferðir til Norðurlands frá Zurich í febrúar og mars og því stefnir í að vetrartímabilið í ferðaþjónustu á Norðurlandi muni áfram njóta vaxtar í samræmi við áherslur ferðaþjónustu á Norðurlandi um að draga úr árstíðarsveiflu.

    Í þessar flugferðir hafa Íslendingar getað bókað sér ferðir, til dæmis með Verdi travel. Verdi Travel setur einnig saman ferðir sem nýta bein flug bæði til einstaklinga og fyrir hópa. Smelltu hér til að skoða heimasíðu Verdi Travel.