Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Local Food Festival 2016 - Skráning sýnenda er hafin.

Local Food Festival í Íþróttahöllinni á Akureyri helgina 1.-2. október & Matarhátíðin North Iceland - Local Food Festival 26. september – 1. október Local Food sýningin verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri helgina 1.-2. október næstkomandi. Þetta er stærsti viðburður sinnar tegundar á landinu og er sýningin haldin annaðhvert ár en hún kallast á við sýninguna Stóreldhús í Reykjavík sem einnig er haldin annað hvert ár,þannig getur áhugafólk um matarmenningu sótt sýningar af þessu tagi ár hvert.
#localfood
#localfood

Local Food Festival í Íþróttahöllinni á Akureyri helgina 1.-2.  október &

Matarhátíðin North Iceland - Local Food Festival 26. september – 1. október

www.localfood.is

 Skráning sýnenda á Local Food Festival 2016

Local Food sýningin verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri helgina 1.-2. október næstkomandi. Þetta er stærsti viðburður sinnar tegundar á landinu og er sýningin haldin annaðhvert ár en hún kallast á við sýninguna Stóreldhús í Reykjavík sem einnig er haldin annað hvert ár,þannig getur áhugafólk um matarmenningu sótt sýningar af þessu tagi ár hvert.

Local Food sýninguna sóttu á síðasta ári um 15 þúsund gestir og voru yfir 30 fyrirtæki sem kynntu framleiðslu sína. Sýninginendurspeglar hinn mikla styrk Norðurlands sem stærsta matvælaframleiðslusvæðis landsins og er því kjörinn kynningarvettvangur fyrirtækja og einstaklinga til að vekja athygli á framleiðslu, matarmenningu, veitingastarfsemi, matartengdri ferðaþjónustu og verslun þessu tengd. Von er á erlendum gestum á sýninguna sem vinna að matartengdri ferðaþjónustu og er tilgangurinn að fræðast um norðlenska matarmenningu ásamt því að kynna eigin hefðir. Lögð er áhersla á að Local Food sýningin sé skemmtileg og eru skipulagðir viðburðir s.s. hinar ýmsu matreiðslukeppni þar sem fagfólk og almenningur spreytir sig með hráefni úr héraði.

Praktísk atriðiði fyrir sýnendur

Sýnendur taka við básum sínum með uppsettu sýningarkerfi, lýsingu í bás, teppalögðu gólfi og rafmagnstengli fyrir tölvu eða lítil raftæki. Fermetraverð á básum er 12.500 kr. fyrir félaga í Matarklösum á Norðurlandi og 18.500 fyrir aðra.

Markaðstorg á Local Food sýningunni

Á sýningunni er einnig mögulegt að taka þátt í markaðstorgi, þar sem aðstaða verður við söluborð en sýnendur sjá sjálfir um annað. Gjald fyrir hvern sýnanda er 18.000 kr. fyrir daginn.

Áhersla er lögð á að sýningin er fyrst og fremst sölusýning! Aðgangur er ókeypis og opnunartíminn frá klukkan 13-17.

Skráning sýnenda á Local Food Festival 2016

Skráningarfrestur er til 22. september

North Iceland Local Food Festival - Matarmenningarhátíð

Einnig er unnið að skipulagningu matarmenningarhátíðarinnar North Iceland Local Food Festival sem haldin verður 26. september – 1. október semnær yfir allt Norðurland og er Local Food sýningin hugsuð sem rúsínan í pylsuendanum. Skipulagðir viðburðir s.s. fyrirlestrar tengdir mat og matarmenningu,  matarhandverkskeppni og matreiðslunámskeið þar sem unnið er með mat úr héraði. Tilgangurinn með North Iceland Local Food Festival er að stækka markhópinn enn frekar og er þá m.a. horft út fyrir landsteinana þar sem miklir möguleikar felast í að kynna íslenska matarmenningu og upplifun með ferðamenn í huga.

Með kveðju og von um gott samstarf,

Fyrir hönd undirbúningshóps
North Iceland Local Food Festival

Davíð Rúnar Gunnarsson

david@vidburdastofa.is, Sími: 8963233

Undirbúningshópur Local Food Festival 2016 skipa:

Karl Jónsson Lamb Inn Öngulsstöðum
Arnheiður Jóhannsdóttir Markaðsstofa Norðurlands
Halldór Óli Kjartansson Markaðsstofu Norðurlands
Jóna Matthíasdóttir Þingeyska matarbúrið
Hulda Sif Hermannsdóttir Akureyrarstofa
Júlía Skarphéðinsdóttir Klúbbi matreiðslumeistara Norðurlandi
Laufey Skúladóttir Matarkistan Skagafjörður
María Helena Tryggvadóttir Akureyrarstofa