Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Mannamót 2017 - Skráning er hafin

Markaðsstofur landshlutanna setja upp vinnufundinn Mannamót í Reykjavík fyrir samstarfsfyrirtæki sín 19. janúar 2017 í flugskýli flugfélagsins Ernis á Reykjavíkurflugvelli.
Mannamót
Mannamót

Markaðsstofur landshlutanna setja upp vinnufundinn Mannamót í Reykjavík fyrir samstarfsfyrirtæki sín 19. janúar 2017 í flugskýli flugfélagsins Ernis á Reykjavíkurflugvelli.

Mannamót markaðsstofanna er kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á Höfuðborgarsvæðinu. Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpa til við að mynda tengsl innan ferðaþjónustunnar. Gestum á Mannamótum gefst kostur á kynna sér það sem mismundi landshlutar eru að bjóða uppá með áherslu á vetrarferðamennsku.

Skráning fer fram á www.markaðsstofur.is og kostar hver bás 15.000 kr. gert er ráð fyrir að hvert fyrirtæki taki einn bás og gestir frá frítt. Öllum er velkomið að bjóða gestum.