MN fundur 24. febrúar næstkomandi skráning hér
Markaðsstofu fundur þriðjudaginn 24. febrúar 2015 á Hótel KEA klukkan 10:30 og stendur til 12:30. Súpa og kaffi 1.500 kr.
Dagskrá fundarins er fjölbreytt eins og sjá má:
Arnheiður Jóhannsdóttir fer yfir stöðu mála í Birding Iceland fugla klasanum.
Gunnar I. Gunnsteinsson framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar heldur erindi um samvinnu MAk og ferðaþjónustunnar á Norðurlandi.
Halldór Óli Kjartansson verkefnastjóri Markaðsstofu Norðurlands segir frá klasanum Ski Iceland og kynnir nýja heimasíðu MN.
Davíð Rúnar hjá Viðburðastofu Norðurlands kynnir Maturinn 2015 og hvernig sýningin mun þróast á næstu árum.
Adolf Ingi kynnir nýja útvarpsstöð Radio Iceland FM sem ætluð er fyrir erlenda gesti.
Hjalti Páll verkefnastjóri Flugklasans Air 66N ræðir stöðuna í flugmálum.
Skráning hér http://www.nordurland.is/is/markadsstofan/frettir-af-innra-starfi/skraning-a-fund-mn-24-02-15