Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Ný stjórn kjörin á aðalfundi

Fimmtudaginn 30. maí var aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands haldinn á Verbúðinni 66 í Hrísey
Hluti af nýrri stjórn á aðalfundi í Hrísey. Frá vinstri: Viggó Jónsson, Edda Hrund Skagfield Guðmund…
Hluti af nýrri stjórn á aðalfundi í Hrísey. Frá vinstri: Viggó Jónsson, Edda Hrund Skagfield Guðmundsdóttir, Sara Sigmundsdóttir, Katrín M. Guðjónsdóttir, Þorbjörg Jóhannsdóttir, Örn Arnarson. Fjarverandi voru Ármann Örn Gunnlaugsson, Tómas Árdal og Hilda Jana Gísladóttir.

Fimmtudaginn 30. maí var aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands haldinn á Verbúðinni 66 í Hrísey. Kosið var um lausar stöður í stjórn,
en eitt sæti var laust á Norðurlandi vestra og eitt á Norðurlandi eystra. Kosið er í hvert sæti til tveggja ára.

Á Norðurlandi vestra barst eitt framboð, frá Erni Arnarsyni sem hefur verið í stjórn undanfarin ár.
Taldist hann því sjálfkjörinn og verður áfram í stjórn næstu tvö ár hið minnsta.

Á Norðurlandi eystra bárust þrjú framboð. Edda Hrund Skagfield Guðmundsdóttir frá Berjayja Akureyri, Helga Nína Helgadóttir frá SBA og Jónas Þór Karlsson frá Sýsla ferðum gáfu kost á sér. Niðurstaða kosningar var sú að Edda Hrund hlaut flest atkvæði, og kemur hún því inn í stjórn næstu tvö ár hið minnsta.

Á fundinum var einnig tilkynnt að nýr fulltrúi kæmi inn fyrir hönd SSNV í stjórn, en það er Katrín M. Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri SSNV. 

Tvö framboð bárust um varamenn í stjórn, frá Tómasi Árdal hjá Arctic Hotels og Þorbjörgu Jóhannsdóttur frá Höldi. Bæði voru þau varamenn áður og þar sem engin önnur framboð voru þau sjálfkjörin til eins árs.

Ný stjórn er eftirfarandi: Viggó Jónsson -Drangeyjarferðir, Sara Sigmundsdóttir - Elding Hvalaskoðun, Ármann Örn Gunnlaugsson - GeoSea, Örn Arnarson - Hótel Laugarbakki, Edda Hrund Skagfield Guðmundsdóttir - Berjaya hótel. Fulltrúi SSNE er Hilda Jana Gísladóttir og fulltrúi SSNV er Katrín M. Guðjónsdóttir. Varamenn: Tómas Árdal - Arctic Hotels og Þorbjörg Jóhannsdóttir - Höldur.

Sigrún Huld Sigmundsdóttir frá Berjaya hótelum lauk þar með setu sinni í stjórn MN til fjögurra ára. Henni eru færðar þakkir fyrir vel unnin störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi.

Að loknum aðalfundarstörfum voru þrjú erindi. Jóhannes Þór Skúlason fór yfir tekjur sveitarfélaga af ferðaþjónustu á Norðurlandi, Ársæll Harðarson sagði frá fjarmörkuðum í Asíu og Linda María Ásgeirsdóttir sagði frá ferðaþjónustu í Hrísey.

Öll erindi og yfirferð á starfsemi MN 2023 verða birt hér á vefnum í næstu viku.