Fara í efni

    Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

    Samstaða um markaðsmál

    Markaðsstofa Norðurlands býður uppá fundi víðsvegar um Norðurland frá 18. mars - 29. apríl 2025.

    Yfirskrift fundanna er Samstaða um markaðsmál og hvetjum við öll sem áhuga hafa á ferðaþjónustu og markaðsmálum að koma og eiga við okkur spjall.
    Einnig verður farið yfir ýmis verkefni MN og skerpt á mikilvægustu áherslum norðlenskrar ferðaþjónustu.

    Hittumst, ræðum það sem helst brennur á í norðlenskri ferðaþjónustu og stillum saman strengi. Sveitarstjórnarfólk er sérstaklega hvatt til að mæta á fundina, sem og allir sem hafa áhuga á ferðaþjónustu.

    Tímasetning allra funda er kl.11:30-13:00, nema á Þórshöfn. 
    Mikilvægt er að skrá sig hér að neðan, til að hægt sé að áætla fjölda þeirra sem mæta á hvern fund.

    Ath: Fundargestir greiða fyrir sig í mat á hverjum stað, verðið er mismunandi og sömuleiðis það sem boðið er upp á. Vinsamlegast takið fram í athugasemdum ef séróskir eru með mat.

    Veldu þann fund sem þú vilt skrá þig á