Ótvíræður ávinningur af millilandaflugi um Akureyrarflugvöll
Ríkið ætlar að liðka til fyrir millilandaflugi frá Egilsstöðum og Akureyri með því að fella niður gjöld á flugfélög fyrstu tvö árin og aðstoða við markaðssetningu svæðanna með fjárframlögum. Þetta staðfestir Matthías Imsland, formaður starfshóps sem kannar möguleika á millilandaflugi frá landsbyggðunum. Tekjur hins opinbera af millilandafluginu yrðu nærri 1,3 milljörðum króna árlega.
Forsætisráðherra skipaði þennan starfshóp til að vega og meta kosti þess að millilandaflug um aðra flugvelli en Keflavík kæmist á laggirnar. Starfshópurinn lét vinna fyrir sig skýrslu sem sýnir ótvírætt að ríkið muni hagnast á millilandafluginu.
Með því að gera ráð fyrir fjórum lendingum á viku, tveimur á Egilsstöðum og tveimur á Akureyri, með rúmlega eitt hundrað erlenda ferðamenn í hverri ferð gæti tekjuaukning hins opinbera af ferðunum verið um 1.250 milljónir króna á hverju ári og innspýtingin á svæðin norðaustanlands verið um 3,6 milljarðar króna.
Af þeim rúmlega milljón ferðamönnum sem koma til landsins munu því samkvæmt þessum útreikningum aðeins 22 þúsund fara í gegnum Akureyri og Egilsstaði. Að mati skýrsluhöfunda er það samt sem áður nægilegt til að ríkið njóti góðs af.
Matthías segir þetta hreina viðbót við lendingar í Keflavík og vera brotabrot af fjölda lendinga þar. „Fjöldi lendinga í viku hverri er um 400 yfir hásumarið í Keflavík. Því erum við aðeins að tala um eitt prósent af lendingum til landsins. Þetta mun því ekki hafa nein neikvæð áhrif á ferðaþjónustu á öðrum stöðum á landinu. Innviðir á norðausturhorni landsins eru vannýttir stóran hluta árs og æskilegt og gott fyrir íslenskt samfélag að nýta þessa innviði betur og dreifa ferðamönnum betur um landið,“ segir Matthías.
Ferðaþjónustuaðilar hafa margsinnis bent á að álag vegna ferðamanna á suðvesturhorni landsins sé komið að þolmörkum og mikilvægt sé að grípa til aðgerða til þess að dreifa álaginu betur um landið svo ekki fari að sjá á náttúru þess.