Sögur í markaðsstarfi - vinnustofa
Þriðjudaginn 30.apríl, kl.13:00-15:30 á Greifanum Akureyri, verður haldin vinnustofa þar sem við lærum að finna sögurnar sem leynast alls staðar í kringum okkur, vinna með þær og miðla þeim til viðskiptavina.
Stjórnandi vinnustofunnar er Auður Ösp Ólafsdóttir, sérfræðingur í efnismarkaðssetningu og frásagnalist í ferðaþjónustu.
Auður varð þekkt innan ferðaþjónustunnar fyrir bloggið og ferðaþjónustufyrirtækið I Heart Reykjavík, sem hún stýrði í áratug. Þar blandaði hún persónulegum frásögnum, á meistaralegan hátt, saman við fjölbreytileika íslenskrar menningar og náttúru. Nálgun hennar heillaði ekki aðeins ferðamenn alls staðar að úr heiminum heldur gaf hún einyrkjum og minni ferðaþjónustuaðilum von í harðri samkeppni við stærri fyrirtæki.
Í fyrirlestri sínum mun Auður deila reynslu sinni af efnissköpun í ferðaþjónustu, setja í samhengi við Norðurland og Norðurstrandarleið, gefa hugmyndir og góð ráð.
Af hverju skipta sögur máli í ferðaþjónustu?
- Ferðaþjónusta er upplifunarvara þar sem upplifunin hefst um leið og hugmynd um ferðalagið kviknar.
- Sögur vekja upp tilfinningar hjá gestum og hjálpa þeim að tengjast vörumerkinu og áfangastaðnum
- Sögur búa í höfði og hjörtum viðskiptavina löngu eftir að þeir eru farnir aftur heim.
- Sögur auka traust og trúverðugleika og hjálpa viðskiptavinum að taka ákvörðun um að eiga við þig viðskipti.
- Sögur breyta ferðalöngum í viðskiptavini og viðskiptavinum í dygga aðdáendur.
Þátttökugjald er 3.500 krónur og er vinnustofan ætluð meðlimum Markaðsstofunnar.