Upptaka frá ráðstefnunni „Stefnum á Norðurland“
Ráðstefnan „Stefnum á Norðurland“ var haldin fimmtudaginn 24. nóvember í Hofi á Akureyri. Á ráðstefnunni voru kynntar niðurstöður greiningar KPMG á þörf fyrir gistirými á Norðurlandi á næstu árum, sérstaklega með tilliti til aukinna umsvifa flugfélaga um Akureyrarflugvöll.
25.11.2022

Auk þess voru haldin erindi um fjárfestingu og uppbyggingu í ferðaþjónustu á Norðurlandi og markaðssetningu áfangastaðarins gagnvart erlendum flugfélögum. Nokkur norðlensk ferðaþjónustufyrirtæki sögðu frá sínum fjárfestingum og verkefnum sem eru í bígerð.
Dagskrá
- Markaðsstofa Norðurlands – hvað er framundan í flugmálum?
- Ferðamálastofa – tölur um ferðahegðun (Smelltu hér til að skoða glærurnar)
- Íslandsstofa – Erlend markaðssókn
- KPMG – Þörfin fyrir gistirými á Norðurlandi á næstu árum
- Norðlensk fyrirtæki – fjárfestingar og uppbygging
- Niceair
- Skógarböðin
- Jarðböðin
- Höfði Lodge