Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu
Föstudaginn 30. júní klukkan 9:30 verður haldinn fundur um alþjóðatengingu Icelandair frá Akureyrarflugvelli. Fulltrúum samstarfsfyrirtækja, sveitastjórnarfulltrúum og fólki sem tengist ferðaþjónustu verður boðið á fundinn og markmiðið er að ræða þau tækifæri sem felast í flugi milli Akureyrar og Keflavíkur.Fulltrúar Icelandair munu halda stutta kynningu og að henni lokinni verður opnað á umræður.Fundurinn fer fram á Hótel Kea á Akureyri .