Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Að gera sér mat úr mörgu - Matarauður Íslands

Af hverju fóru Íslendingar að nota mjólkursúr til að geyma matinn sinn? Hver eru matarsérkenni Vesturlands? Var kræklingasúpa margreynt ráð við svefnleysi fyrr á öldum? Hver er sérstaða íslensks hráefnis? Hvar og hvenær eru matarviðburðir? Hvernig hefur sjálfbærni í matvælaframleiðslu áhrif á heilsu okkar? Hvað gera matarfrumkvöðlar? Hversu stór hluti vinnuafls á Íslandi brauðfæðir þjóðina?

Þetta og svo margt fleira sem tengist mat og matarmenningu okkar Íslendinga er að finna á nýrri vefsíðu Matarauðs Íslands. Tilgangur vefsíðunnar er að vekja athygli á fjölbreytileika og gæðum íslensks matar og þær ríkulegu hefðir sem við búum við. Vefsíðan á að þróast sem miðlægur brunnur upplýsinga um matvælatengd málefni.

Matur er stór hluti af ímynd þjóða og speglar náttúruna, söguna og tíðarandann. Matarferðaþjónusta er hratt vaxandi angi innan ferðaþjónustunnar. Hjá flestum okkur blundar þrá eftir því að tengja það sem við látum ofan í okkur við einhvern uppruna og merkingu. Að sitja á veitingahúsi í Öræfasveit með útsýni yfir stórfenglegan Vatnajökul og drekka bjór sem bruggaður er úr vatni jökulsins eða að snæða ylvolgt hverabakað rúgbrauð með taðreyktum silungi í Mývatnssveit er dæmi um það hvernig hægt er að tengja mat við landið og söguna.

Matarauður Íslands er verkefni sem heyrir undir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Leiðarljós eru matvælastefna heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna og samvinna atvinnugreina.