Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Markaðsstofa Norðurlands boðar til aðalfundar 10. maí 2016 kl 13-15.

Markaðsstofa Norðurlands boðar til aðalfundar 10. maí 2016 kl 13-15. Fundurinn er haldinn á Greifanum Akureyri. Fundarstjóri er Sigfús Ingi Sigfússon Verkefnastjóri í atvinnu-, menningar- og kynningarmálum hjá Sveitarfélaginu Skagafirði.
Markaðsstofa Norðurlands
Markaðsstofa Norðurlands

Markaðsstofa Norðurlands boðar til aðalfundar 10. maí 2016 kl 13-15. Fundurinn er haldinn á Greifanum Akureyri.

Fundarstjóri er Sigfús Ingi Sigfússon Verkefnastjóri í atvinnu-, menningar- og kynningarmálum hjá Sveitarfélaginu Skagafirði.

Dagskrá aðalfundar skv skipulagsskrá:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Afgreiðsla ársreiknings
  3. Afgreiðsla fjárhagsáætlunar
  4. Stjórnarkjör
  5. Kjör endurskoðenda
  6. Starfsreglur stjórnar
  7. Önnur mál

Stjórnarmenn eru kosnir á aðalfundi stofnunarinnar. Stjórn stofnunarinnar er skipuð fimm mönnum og tveimur varamönnum. Miða skal við að tveir stjórnarmenn og einn varamaður komi af Norðurlandi vestra og þrír stjórnarmenn og einn til vara frá Norðurlandi eystra. Stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára í senn. Varamenn eru kosnir til eins árs í senn. Annað hvert ár skal kosið um tvo stjórnarmenn og hitt árið um þrjá stjórnarmenn.

Á fundinum verður kosið um stjórnarsæti Birnu Lindar Björnsdóttur og Sigríðar Káradóttur þar sem tveggja ára kjörtímabili þeirra er að ljúka. Einnig er kosið um sæti varastjórnarmanna Karls Jónssonar og Tómasar Árdal. Aðrir stjórnarmenn eru Svanhildur Pálsdóttir formaður, Gunnar Jóhannesson og Njáll Trausti Friðbertsson.

Framboð frá samstarfsfyrirtækjum til stjórnar þurfa að koma fram í síðasta lagi fyrir upphaf aðalfundar og eru áhugasamir beðnir að tilkynna framboð til framkvæmdastjóra.

Á aðalfundi fer hvert samstarfsfyrirtæki Markaðsstofunnar með atkvæði samkvæmt sínum gjaldflokki, 1 atkvæði fyrir lægsta flokk, 2 atkvæði fyrir næstlægsta flokk og svo framvegis upp í 5 atkvæði fyrir efsta gjaldflokk. Skilyrði þess að samstarfsfélög Markaðsstofu Norðurlands geti nýtt atkvæði sín á aðalfundi er að þau séu skuldlaus við Markaðsstofu Norðurlands.

Nánari upplýsingar um MN er að finna hér http://www.nordurland.is/is/markadsstofan/frettir-af-innra-starfi