Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Aðgengi að Íslandi - Málþing um millilandaflug á Norður og Austurland - Upptökur

Þriðjudaginn 13. september mun MN og flugklasinn Air 66N halda málþing um millilandaflug á Norður- og Austurlandi undir yfirskriftinni "Aðgengi að Íslandi". Málþingið verður haldið í Flugsafni Íslands á Akureyri og hefst kl. 14:00.

Þriðjudaginn 13. september munu MN og flugklasinn Air 66N halda málþing um millilandaflug á Norður- og Austurlandi undir yfirskriftinni "Aðgengi að Íslandi". Málþingið verður haldið í Flugsafni Íslands á Akureyri og hefst kl. 14:00.

Á málþinginu verður fjallað um möguleika á auknu millilandaflugi og mikilvægi flugvallanna fyrir dreifingu ferðamanna, nýtingu fjárfestinga og öryggi flugfarþega til landsins. Við fáum líka áhugavert erindi frá sænskum flugvallarstjóra sem segir frá reynslu þeirra af flugvallarrekstri með annarri nálgun en almennt gerist.

Þátttaka er án endurgjalds, en vinsamlegast skráið ykkur hér.

Hér má sjá upptökur af málþinginu. Athugið að þær eru í þremur hlutum í play-listanum hér fyrir neðan.

 

Dagskrá málþingsins er eftirfarandi:

Dagskrá:

14:00  Setning málþings

-    Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra

14:10  Leiðir liggja til allra átta…

-    Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður, ferðaþjónusta og skapandi greinar, Íslandsstofa

14:20  Hænan eða eggið – hvort kemur á undan?

-    Þórir Garðarsson, varaformaður SAF

14:30  Vegvísir í ferðaþjónustu og millilandaflug

-    Óskar Jósefsson, framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála

14:40  Flugþróunarsjóður – fjárfesting ríkisins í fleiri gáttum

-    Valgerður Rún Benediktsdóttir, formaður stjórnar Flugþróunarsjóðs

14:50  Kaffihlé

15:20  Markaðssetning Isavia á flugvöllum landsins

-    Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Isavia

15:30  Ljón í veginum

-    Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar

15:40  New thinking in managing airports

-    Robert Lindberg, Managing Director of Skelleftea Airport in Sweden

16:10  Pallborðsumræður

16:30  Þingslit

Fundarstjóri: Hjalti Páll Þórarinsson, verkefnastjóri flugklasans Air 66N

Vinsamlegast skráið þátttöku hér.