Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Local Food Festival

Local Food sýningin verður haldin í Íþróttahöllinni á Akureyri laugardaginn 17. október næstkomandi. Þetta er stærsti viðburður sinnar tegundar á landinu. Local food sýningin verður haldin annað hvert ár og tekur við af sýningunni Matur-Inn, en þá sýningu sóttu um 13-15 þúsund gestir þegar hún var haldin síðast árið 2013.

Local Food sýningin endurspeglar styrk Norðurlands sem stærsta matvælaframleiðslusvæðis landsins og er því kjörinn kynningarvettvangur fyrirtækja og einstaklinga í geiranum til að vekja athygli á framleiðslu, matarmenningu, veitingastarfsemi, matartengdri ferðaþjónustu og verslun þessu tengd. 

Breytingin í ár er 6 daga matarmenningarhátíð frá 15.-20. október, sem nær yfir allt Norðurland og er sjálf sýningin hugsuð sem rúsínan í pylsuendanum. Alla dagana verða skipulagðir viðburðir s.s. fyrirlestrar tengdir mat og matarmenningu,leikrit um mat, matarhandverkskeppni, heimsóknir í matvælafyrirtæki, matreiðslunámskeið þar sem unnið er með mat úr héraði, hægt verður að bóka í ferðir með ferðaskrifstofu þar sem matur í héraði er í aðalhlutverki, valdir veitingastaðir bjóða upp á matseðla með séráherslum og kynntar verða gamlar íslenskra matarhefðir.  Tilgangurinn með því að útvíkka hugmyndina og tengja viðburði við sýninguna er að stækka markhópinn enn frekar og er þá m.a. verið að horfa út fyrir landsteinana, þar sem miklir möguleikar felast í að kynna íslenska matarmenningu og upplifun með ferðamenn í huga.

Ekki missa af matreiðslukeppninni Mystery Box á laugardeginum þar sem Landsliðsmaðurinn Garðar keppir á móti Steven Edwards vinningshafa MasterChef - The Professionals 2013.

Nánar á www.localfood.is