Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Skráning á Mannamót 2018 hafin

Markaðsstofa Norðurlands vekur athygli á því að skráning er hafin á Mannamót 2018. Viðburðurinn hefur verið vel sóttur síðustu ár, en eins og áður verður hann haldinn í flugskýli Ernis á Reykjavíkurflugvelli. Að þessu sinni verða Mannamót haldin fimmtudaginn 18. janúar, 2018.

Markaðsstofa Norðurlands vekur athygli á því að skráning er hafin á Mannamót. Viðburðurinn hefur verið vel sóttur síðustu ár, en eins og áður verður hann haldinn í flugskýli Ernis á Reykjavíkurflugvelli.  Að þessu sinni verða Mannamót haldin fimmtudaginn 18. janúar, 2018.

Tilgangur Mannamóta er að bjóða fram vettvang fyrir ferðaþjónustufyrirtæki af landsbyggðinni til að kynna sig og sína starfsemi fyrir ferðaþjónustufyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu, og skapa með því aukin tengsl innan ferðaþjónustunnar í heild. Síðustu ár hafa sýnendur verið fleiri en 200 í hvert skipti og gestir yfir 700 talsins.

Markaðsstofurnar sjá um að senda út boðskort, bæði prentuð og rafræn auk þess sem viðburðurinn er vel auglýstur á Facebook. Við hvetjum samstarfsfyrirtæki okkar til að taka þátt í viðburðinum og deila viðburðinum á sínum samfélagsmiðlum.

Nánari upplýsingar um Mannamót má sjá með því að smella hér.

Sýnendur

Athugið að aðeins samstarfsfyrirtækjum Markaðsstofa landshlutanna gefst kostur á að skrá sig á Mannamót til þess að sýna og kynna sitt fyrirtæki. Þátttökugjald er 15 þúsund krónur, plús virðisaukaskattur. Skráningu lýkur þann 12. janúar 2018.

Hér er hægt að skrá sig sem sýnanda.

Gestir

 Öllum er hins vegar frjálst að mæta á viðburðinn og enginn aðgangseyrir er fyrir gesti. Við biðjum þó þá sem ætla að koma sem gesti, að skrá sig svo hægt sé að áætla fjölda gesta.

Sú skráning fer fram á hér.