Fara í efni

    Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

    Sveitasetrið Hofsstöðum

    - Hótel

    Sveitasetrið Hofsstöðum er fjölskyldurekið sveitahótel staðsett á kyrrlátum stað í fallegu umhverfi við bakka Héraðsvatna með útsýni til lands og sjávar.
    Sveitasetrið býður upp á 30 notaleg 26 fm herbergi með baði og verönd. Einnig eru í boði 3 herbergi með baði í bændagistingu á Hofsstöðum. Á Sveitasetrinu er veitingastaður þar sem eigin framleiðsla og hráefni úr heimabyggð er í fyrirrúmi.

    Hér er hægt að dvelja og njóta kyrrðarinnar sem sveitin hefur uppá að bjóða með alla þjónustu og afþreyingu í Skagafirði innan seilingar.
    Sveitasetrið er við veg nr. 76 aðeins 18 km frá þjóðvegi 1.

    Afþreying í Skagafirði er fjölbreytt og áhugaverð, svo sem söfn, sýningar, sundlaugar, hestasýningar, bátasiglingar, golf, skíðasvæði, gönguleiðir o.fl. (www.visitskagafjordur.is )

    Hlökkum til að taka á móti ykkur.

    Sveitasetrið Hofsstöðum

    Sveitasetrið Hofsstöðum

    Sveitasetrið Hofsstöðum er fjölskyldurekið sveitahótel staðsett á kyrrlátum stað í fallegu umhverfi við bakka Héraðsvatna með útsýni til lands og sjáv
    Leaflet | © OpenStreetMap contributors

    Aðrir (1)

    Bændagistingin Hofsstöðum Hofsstaðir 551 Sauðárkrókur 453-6555