Fundur á Húsavík fellur niður:Markaðssetning í breyttu umhverfi 25. apríl á Norðurlandi
Við boðum til kynningarfunda ásamt Íslandsstofu til að kynna markaðssetningu á Íslandi og þar sem við munum fara yfir helstu niðurstöður könnunar Rannsókna og Ráðgjafar ferðaþjónustunnar um erlenda ferðamenn á Norðurlandi. Fundirnir verða haldnir í Varmahlíð, á Akureyri og Húsavík mánudaginn 25. apríl. Skráning er hér www.nordurland.is/is/markadsstofan/frettir-af-innra-starfi/skraning
Markaðssetning í breyttu umhverfi
Fundir á Norðurlandi, mánudaginn 25. apríl 2016
Markaðsstofa Norðurlands og Íslandsstofa boða til fundar um samstarf og markaðssetningu Íslands sem áfangastaðar á árinu 2016.
Dagskrá:
Erlendir ferðamenn á Norðurlandi
Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands
Markaðssetning Íslands sem áfangastaðar 2016 og ný herferð Ísland ? allt árið
Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður, ferðaþjónusta og skapandi greinar, Íslandsstofa
Markaðsgreining og verkfærakista
Daði Guðjónsson, verkefnisstjóri, ferðaþjónusta og skapandi greinar, Íslandsstofa
Fundirnir verða mánudaginn 25. apríl á eftirtöldum stöðum:
Hótel Varmahlíð kl. 09.30-11.30
Hótel KEA kl. 13.00-15.00
Salka veitingastaður kl. 16.30-18.30