Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Áfangastaðaáætlun Norðurhjarasvæðisins

Undanfarna mánuði hefur Markaðsstofa Norðurlands unnið að áfangastaðaáætlun fyrir Norðurhjarasvæðið. Markmið verkefnisins er að móta sameiginlega sýn svæðisins fyrir uppbyggingu í ferðaþjónustu. 

Svo áfangastaðaáætlun gagnist svæðinu sem best er mikilvægt að hún sé unnin í góðu samstarfi við heimafólk.
Því verður haldinn vinnufundur á Teams, miðvikudaginn 9.október kl.15:00-17:00.
Þessi vinna verður nýtt til að móta framtíðarsýn og stefnu fyrir Norðurhjarasvæðið. Að lokum verður unnin aðgerðaáætlun til framtíðar byggð á framangreindri vinnu. Niðurstöður þessarar vinnu munu koma fram í áfangastaðaáætlun fyrir Norðurhjarasvæðið.

Fundurinn er opinn öllum sem vilja hafa áhrif en nauðsynlegt er að skrá sig.