Fara í efni

    Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

    Fundir um sögutengda ferðaþjónustu

    Markaðsstofa Norðurlands verður á ferðinni í Húnavatnssýslum og Skagafirði fimmtudaginn 9. febrúar til að kynna og fara yfir verkefni sem tengjast söguferðaþjónustu á svæðinu.

    ATH: Vegna veðurs hafa fundirnir verið færðir til fimmtudagsins 9. febrúar.

    Markaðsstofa Norðurlands verður á ferðinni í Húnavatnssýslum og Skagafirði þriðjudaginn 7. febrúar fimmtudaginn 9. febrúar til að kynna og fara yfir verkefni sem tengjast söguferðaþjónustu á svæðinu.

    Farið verður yfir hugmyndir sem MN hefur sett upp en jafnframt verður tíminn nýttur í spjall með einstaklingum á svæðinu um það hvernig þeir sjá framhaldið fyrir sér, svo sérstaða svæðisins megi nýtast sem best í frekari uppbyggingu til framtíðar.

    Rætt verður um tækifæri í vöruþróun og línurnar lagðar fyrir framhaldið.

    Haldnir verða tveir klukkutíma langir fundir, annars vegar í Kakalaskála kl. 13:00 og hins vegar á Hótel Laugarbakka kl. 17:00.

    Skráning á fundinn fer fram á þessari slóð: www.northiceland.is/is/mn/starfsemi/kynning-a-soguverkefni