Fara í efni

    Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

    Vinnufundur um áfangastaðaáætlun Norðurhjara

    Undanfarna mánuði hefur Markaðsstofa Norðurlands unnið að áfangastaðaáætlun fyrir Norðurhjarasvæðið. Markmið verkefnisins er að móta sameiginlega sýn svæðisins fyrir uppbyggingu í ferðaþjónustu.

    Undanfarna mánuði hefur Markaðsstofa Norðurlands unnið að áfangastaðaáætlun fyrir Norðurhjarasvæðið með styrk úr Sóknaráætlun Norðurlands eystra. Markmið verkefnisins er að móta sameiginlega sýn svæðisins fyrir uppbyggingu í ferðaþjónustu.

    Svo áfangastaðaáætlun gagnist svæðinu sem best er mikilvægt að hún sé unnin í góðu samstarfi við heimafólk.
    Því verður haldinn vinnufundur á Teams, miðvikudaginn 9.október kl.15:00-16:30.
    Þessi vinna verður nýtt til að móta framtíðarsýn og stefnu fyrir svæðið. Að lokum verður unnin aðgerðaáætlun til framtíðar byggð á framangreindri vinnu. Niðurstöður þessarar vinnu munu koma fram í áfangastaðaáætlun fyrir Norðurhjarasvæðið.

    Fundurinn er opinn öllum sem vilja hafa áhrif en nauðsynlegt er að skrá sig.

    Smelltu hér til að skrá þig