Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Frábærri Uppskeruhátíð lokið

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi fór fram í gær í Mývatnssveit og óhætt er að segja að hún hafi verið frábær. Mývetningar tóku vel á móti sínum kollegum í ferðaþjónustu og farið var í heimsóknir í ýmis fyrirtæki á svæðinu, áður en boðið var upp á kvöldmat og skemmtun í Skjólbrekku.

Uppskeruhátíð ferðaþjónustunnar á Norðurlandi fór fram í gær í Mývatnssveit og óhætt er að segja að hún hafi verið frábær. Mývetningar tóku vel á móti sínum kollegum í ferðaþjónustu og farið var í heimsóknir í ýmis fyrirtæki á svæðinu, áður en boðið var upp á kvöldmat og skemmtun í Skjólbrekku. 

Venju samkvæmt voru þrjár viðurkenningar veittar, Sproti ársins, Fyrirtæki ársins og viðurkenning fyrir störf í þágu ferðaþjónustunnar. 

Sproti ársins

Viðurkenningin Sproti ársins er veitt ungu fyrirtæki sem hefur skapað eftirtektarverða nýjung í ferðaþjónustu á Norðurlandi. Það fyrirtæki sem fær verðlaunin í ár er Bjórböðin sem komu með hvelli inn í ferðaþjónustu á þessu ári.

Böðin voru opnuð í júní og vöktu strax mikla athygli bæði hérlendis sem erlendis. Reyndar hafði hugmyndin um byggingu baðanna vakið athygli löngu áður en ráðist var í framkvæmdir, enda eru slík böð ekki að finna hvar sem er í heiminum. Fyrirtækið kom því ekki aðeins nýtt inn á markaðinn, heldur kom það inn með glænýja upplifun.

Bjórböðin hafa skapað sér ákveðna sérstöðu í ferðaþjónustu og ferðaskrifstofur verið fljótar að taka við sér með því að bjóða upp á ferðir þar sem viðkoma í böðunum er innifalin. Ferðaþjónusta á Norðurlandi nýtur góðs af þessari nýjung þar sem þarna er komin eftirsóknarverð þjónusta sem önnur ferðaþjónustufyrirtæki geta nýtt sér. Það er reyndar ekki bara vegna sjálfra bjórbaðanna, heldur einnig vegna veitingastaðarins og barsins sem hafa notið vinsælda.

Bjórböðin eru rekin af Ragnhildi Guðjónsdóttur, en hún og maðurinn hennar, bruggmeistarinn Sigurður Bragi Ólafsson eiga fyrirtækið að stærstum hluta ásamt foreldrum Sigurðar þeim Agnesi Önnu Sigurðardóttur og Ólafi Þresti Ólafssyni.

Við óskum þeim, og öðrum hluthöfum, til hamingju með metnaðarfulla uppbyggingu Bjórbaðanna og vonumst um leið til þess að fyrirtækið haldi áfram að vaxa og dafna. Fyrirtækið er þegar orðið mikilvægur hlekkur í uppbyggingu ferðaþjónustu á Norðurlandi.

Fyrirtæki ársins

Viðurkenningin Fyrirtæki ársins er veitt fyrirtæki sem er búið að slíta barnsskónum og hefur skapað sér sterka stöðu á markaði. Fyrirtækið hefur unnið að stöðugri uppbyggingu, vöruþróun og nýsköpun og er með höfuðstöðvar á Norðurlandi. Það fyrirtæki sem fær viðurkenninguna í ár er Gauksmýri.

Ferðaþjónustan á Gauksmýri er rótgróin og á sér sögu sem teygir sig aftur til síðustu aldar, því hún hófst árið 1999. Árið 2006 var þar opnað nýtt gistiheimili með 18 herbergjum, veitingasal og móttöku. Það voru hjónin Jóhann Albertsson og Sigríður Lárusdóttir sem stofnuðu fyrirtækið á sínum tíma, en Sigríður féll frá árið 2015. Í kjölfarið komu börn þeirra að rekstri fyrirtækisins, en í dag sjá þau Hrund Jóhannesdóttir og maður hennar Gunnar Páll Helgason um reksturinn að mestu leyti.

Gauksmýri snýst fyrst og fremst um hestamennsku og öll aðstaða á sveitabænum er til fyrirmyndar. Þar er reiðvöllur, með glænýrri stúku sem var byggð í sumar, þar sem kostir íslenska hestsins eru tíundaðir og sýndir á sérstökum sýningum sem vel eru sóttar. Gestum er síðan boðið yfir í flotta aðstöðu í hesthúsinu, þar sem þeim gefst kostur á að kynnast hestunum betur.

Gauksmýri er mikilvægt fyrirtæki í ferðaþjónustu í Húnaþingi vestra, og hefur lagt sitt af mörkum og gott betur til að stuðla að bættri byggð. Gott dæmi um það er veitingastaðurinn Sjávarborg á Hvammstanga, sem er í eigu fyrirtækisins. Staðurinn var opnaður árið 2015 og hefur eflt bæði ferðaþjónustu á svæðinu sem og atvinnulífið almennt. Matseðillinn endurspeglar umhverfið vel og eins og nafnið gefur til kynna er áherslan lögð á sjávarfang.

Við óskum fjölskyldunni á Gauksmýri til hamingju með að eiga svo öflugt fyrirtæki og vonumst til þess að það verði svo áfram um ókomna tíð. 

Viðurkenning fyrir störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi

Viðurkenninguna fyrir störf í þágu ferðaþjónustu á Norðurlandi fær einstaklingur sem hefur haft góð áhrif á ferðaþjónustu á Norðurlandi í heild sinni og hefur starfað beint eða óbeint fyrir ferðaþjónustu á svæðinu. Í ár er það Ólöf Hallgrímsdóttir sem hlýtur viðurkenninguna, en hún hefur undanfarin 18 ár sýnt og sannað að áhugi fólks á fjósum er ekki bara takmarkaður við mjólkurafurðir. Vogafjós í Mývatnssveit er nú með bestu veitingastöðum Norðurlands og þótt víðar væri leitað, og hefur haft mjög jákvæð áhrif á þróun ferðaþjónustu í landshlutanum.

Ólöf hefur verið brautryðjandi í ferðaþjónustu lengi og svo sannarlega farið sínar eigin leiðir. Hún var snemma byrjuð að selja mat úr héraði og sagði í viðtali við fylgirit Morgunblaðsins árið 2007 að áherslan væri ekki á hamborgara og franskar, heldur rétti eins og hverabrauð með silungi úr Mývatni, hangikjöt og heimagerðan mozzarella- og fetaost. Sú áhersla hefur skilað því að Vogafjós er eitt af þekktari kennileitunum í umhverfi ferðaþjónustu í Mývatnssveit og raunar á Norðurlandi öllu. Auðvitað hefur hin sérstaka samþætting landbúnaðar og veitingareksturs þar einnig áhrif. Hugmyndin, að selja inn á kaffihús til að fylgjast með mjólkun kúa hefur eflaust þótt nokkuð galin á sínum tíma en hún hefur engu að síður slegið í gegn.

Það segir nokkuð um hve einstök hugmyndin um Vogafjós er að árið 2003 sá Vegagerðin sér ekki annað fært en að búa til sérstakt skilti fyrir ferðamannafjós, en þá var Vogafjós eini staðurinn á landinu þar sem hægt var að fylgjast með því sem fram fer í fjósi. Slík fjós voru reyndar ekki alveg óþekkt og höfðu bændur opnað fjósin fyrir ferðamönnum bæði í Eyjafirði og Laugarbakka undir Ingólfsfjalli, samkvæmt grein Morgunblaðsins um þjónustumerkið fyrir ferðamannafjós frá árinu 2003. Í Vogafjósi var hinsvegar, og er enn, hægt að fylgjast með mjöltum í gegnum gler og slíkt þótti þá nýstárlegt og snjallt. Ekki hefur verið sýnt fram á annað enn þann dag í dag, en að sú hugmynd sé snjöll!

Ólöf hefur sýnt af sér einstaka þrautseygju í baráttunni fyrir framleiðslu og sölu á mat beint frá býli. Hún hefur rutt brautina fyrir marga og sýnt fram á að með skýrri framtíðarsýn og stefnu má ná frábærum árangri. Hún hefur einnig sýnt gott fordæmi með því að veita þjónustu allt árið og þannig aukið viðskipti við ferðamenn á Norðurlandi auk þess að efla möguleika annarra fyrirtækja á heilsárs starfsemi.  Við óskum Ólöfu til hamingju með viðurkenninguna og óskum henni einnig velfarnaðar í störfum sínum um ókomin ár.