Fundur um flugmál á Akureyri
Markaðsstofa Norðurlands stefnir að því að halda fund um flugmál á Hótel Kea á Akureyri mánudaginn 16. desember n.k. 12:00 – 14:00.
11.12.2019
Markaðsstofa Norðurlands stefnir að því að halda fund um flugmál á Hótel Kea á Akureyri mánudaginn 16. desember n.k. 12:00 – 14:00. Léttur hádegismatur verður í boði án endurgjalds, en nauðsynlegt er að skrá sig hér .
Þingmönnum norðaustur- og norðvesturkjördæma er sérstaklega boðið til þessa fundar.
Dagskrá fundarins verður á þessa leið:
- Kynning á greinargerð um ávinning af millilandaflugi um Akureyrarflugvöll – Jón Þorvaldur Heiðarsson
- Kynning á nýrri úttekt á rekstri og mannvirkjum Akureyrarflugvallar – Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson
- Umræður um stöðu Akureyrarflugvallar m.t.t. Samgönguáætlunar og fjárlaga
Hér má sjá greinargerð sem Jón Þorvaldur Heiðarsson, hagfræðingur og lektor við Háskólann á Akureyri, vann fyrir Markaðsstofuna. Þar er lagt mat á ávinning af millilandaflugi um Akureyrarflugvöll miðað við fjórar mismunandi sviðsmyndir.
Við hvetjum alla til að mæta og taka þátt í umræðunum.