Kynning á nýju vörumerki Demantshringsins
Fimmtudaginn 12. desember næstkomandi verður hádegisfundur á Sel-Hótel Mývatn um Demantshringinn/Diamond Circle, frá klukkan 11:30-13:00. Ráðgjafafyrirtækið Cohn & Wolfe hefur hannað nýtt vörumerki fyrir leiðina og mun Ingvar Örn Ingvarsson, sérfræðingur, fara yfir það ferli á fundinum og kynna vörumerkið. Þá munu verkefnastjórarnir Björn H. Reynisson og Katrín Harðardóttir fara yfir stöðuna á þróun Demantshringsins og næstu skref.
Ekkert kostar inn á fundinn og boðið verður upp á súpu og brauð.
Fundurinn verður í beinni útsendingu á Facebook síðu Markaðsstofu Norðurlands.
Hér er hægt að skrá sig á fundinn: https://www.northiceland.is/is/moya/formbuilder/index/index/skraning-a-fund-diamond-circle