Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sumarið er komið á Norðurlandi

Það stefnir í góða daga á Norðurlandi í vikunni. Hlýtt er í veðri og sauðburður í fullum gangi, litlu lömbin fá góðar móttökur. Hér á síðunni má sjá upplýsingar um alla afþreyingu og gistimöguleika á Norðurlandi og það gæti verið góð hugmynd að taka forskot á sumarfríið og njóta blíðunnar.
Mynd frá Vísi.is
Mynd frá Vísi.is

Það stefnir í góða daga á Norðurlandi í vikunni. Hlýtt er í veðri og sauðburður í fullum gangi, litlu lömbin fá góðar móttökur. Hér síðunni má sjá upplýsingar um alla afþreyingu og gistimöguleika á Norðurlandi og það gæti verið góð hugmynd að taka forskot á sumarfríið og njóta blíðunnar. 

Sjá frétt frá Vísi.is

Útlit er fyrir suðlægum áttum út vikuna og munu íbúar á Norðausturlandi njóta góðs af því ef marka má spá Veðurstofu Íslands sem á von á töluverðum hita á því svæði í vikunni. Á morgun er búist við 5 – 14 stiga hita á landi en allt að 18 stigum norðaustan – og austanlands. 

Á fimmtudag er hins vegar gert ráð fyrir að hiti geti náð allt að 20 stigum norðaustan- og austanlands og er svipað upp á teningnum á föstudag og laugardag. Á sunnudag og mánudag er hins vegar búist við 6 til 14 stiga hita þar sem hlýjast verður á Suðausturlandi. 

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á morgun:
Suðaustan 8 -15 metrar á sekúndu en staðbundið allt að átján metrum á sekúndu annað kvöld en áfram verður bjartviðri fyrir austan. Hiti 5 til 14 stig, en að 18 stigum norðaustan- og austanlands.

Á miðvikudag:
Sunnan 10-18 m/s framan af degi og rigning, en þurrt að kalla um landið austanvert. Snýst í suðvestan 5-13 eftir hádegi og dregur úr úrkomu. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Austurlandi.

Á fimmtudag:
Suðvestanátt, víða 10-15 m/s. Dálítil væta og hiti 8 til 12 stig, en þurrt að mestu norðaustan- og austanlands og hiti 14 til 20 stig.

Á föstudag:
Sunnan 8-15 og rigning, sums staðar talsverð vestantil á landinu. Þurrt að kalla um landið norðaustan- og austanvert. Hiti breytist lítið.

Á laugardag:
Minnkandi suðlæg átt, rigning og hiti 7 til 12 stig, en bjartviðri norðaustantil og hiti 14 til 20 stig.

Á sunnudag og mánudag:
Vestlæg átt og dálitlir skúrir, en þurrt á austurhelmingi landsins. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast á Suðausturlandi.

Sjá Vísir.is

Frétt skrifuð af Birgi Olgeirssyni