Taktu þátt í þróun á upplifunum í apríl með Blue Sail!
Í apríl verða haldnar vinnustofur með breska ráðgjafafyrirtækinu Blue Sail. Skráning fer fram á heimasíðu MN og hefst þriðjudaginn 27. mars. Við viljum þróa það besta sem völ er á þegar kemur að upplifunum ferðamanna, þar á meðal þeim sem tengjast mat og matargerð.
Skráning fer fram hér að neðan.
https://www.northiceland.is/is/markadsstofan/acw/skraning
Við viljum fá þig til þess að hafa áhrif á Arctic Coast Way með því að taka þátt í þessum vinnustofum, sem verða bæði áhugaverðar og skemmtilegar. Markmiðið er að sjálfsögðu það að fá fleiri gesti á það svæði Arctic Coast Way sem þú tilheyrir og að þróa þær upplifanir sem eru í boði fyrir ferðamenn.
Þróun á upplifunum hjálpar ferðaþjónustufyrirtækjum að:
- Taka þátt í því nýjasta sem er gerast í ferðaþjónustu á heimsvísu
- Laða að ferðamenn sem eru meira menntaðir og meðvitaðir um samfélög, menninguna og umhverfið þar sem þeir ferðast.
- Auka sýnileika sinn á alþjóðamörkuðum og sýna fram á að þeir bjóða upp á það allra nýjasta og vinsælasta sem í boði er.
- Styrkja ímynd sína, bæði vörumerkisins en einnig áfangastaðarins.
Lykilspurningarnar eru:
- Við erum öðruvísi en aðrir – en afhverju?
- Hvað er það sem er einstakt hér og ekki er hægt að gera annarsstaðar?
- Hvernig gefum við gestum okkar tækifæri til að kynnast hversdagslífinu og upplifa það beint í æð??
- Hvernig getum við unnið betur saman? Með hverjum getum við starfað, búið til pakka og skapað fleiri einstakar upplifanir?
Afhverju að gera þetta í samvinnu fyrir Arctic Coast Way?
- Það er það sem er vinsælast á erlendum mörkuðum.
- Það laðar að gesti og hvetur þá til að velja áfangastaðinn en ekki bara fyrirtækin.
- Það hvetur gesti til þess að vera lengur á svæðinu og kaupa meira af þjónustu.
- Það styður við sjálfbæra þróun.
- Það setur áherslu á upplifanir sem eru ekki endilega vinsælastar
- Það býr til hvata til þess að ferðast utan hánnatíma
Tímasetningarnar fyrir vinnustofurnar eru:
24.04.2018 Sauðárkrókur; 14.00-17.30
25.04.2018 Akureyri; 14.00-17.30 - Hótel Kjarnalundur
26.04.2018 Ásbyrgi; 14.00-17.30
Þátttökugjald: 2000 krónur á mann
Fyrir meiri upplýsingar um þróun á upplifunum, er bent á heimasíðu Markaðsstofunnar. Sérstaklega er fjallað um þennan hluta verkefnisins í Þriðju skýrslu sem hægt er að finna á þessari slóð:
https://www.northiceland.is/is/markadsstofan/acw
Hlökkum til að sjá þig í apríl!