Uppskeruhátíð ferðaþjónustu á Norðurlandi - Skráning
Hátíðinni hefur verið frestað til 30. október.
Hátíðin mun fara fram 24. október næstkomandi í Hörgársveit, Hjalteyri, Hauganesi, Hrísey og Árskógsströnd. Þátttökumet hefur verið slegið seinustu ár og við gerum ekki ráð fyrir breytingu á því svo það stefnir í góða hátíð.
Skráningarfrestur rennur út 15. október næstkomandi. Hér fyrir neðan má sjá tilboð í gistingu á svæðinu.
Uppskeruhátíðin eru einungis fyrir samstarfsfyrirtæki MN. Kostnaðu er 8.000kr per einstakling. Inn í gjaldinu er ferðalag dagsins, matur og drykkur að undanskildum drykkjum á lokahófi og í hádegi. Skráningargjald er innheimt 21. október og er ekki endurgreitt eftir það.
Ferðin frá Akureyri hefst við Hof og er lagt af stað stundvíslega klukkan 09:00. Fyrir þá sem ætla að keyra sjálfir þá er upphafstaður Skjaldarvík kl 09:15 og verður það síðasta stopp fyrir hátíð kvöldsins einnig. Þeir sem gista á Skjaldarvík eru því beðnir um að koma beint þangað.
Ekki verður boðið upp á rútu daginn eftir en rútur fara til Akureyrar eftir ball klukkan 01:00 á Skjaldarvík og til Akureyrar.
Skjaldarvík
Bókun: skjaldarvik@skjaldarvik.is eða 552-5200
Tilboð á gistingu í Skjaldarvík vegna uppskeruhátíðar.
Tveggja manna herbergi með morgunmat, sameiginlegar snyrtingar
Verð 9.900 per. nótt
Eins manns herbergi með morgunmat,
Sameiginlegar snyrtingar
verð 7.900 per. nótt
Gildir 22. 23. & 24. Október 2019