Tjaldsvæði Siglufjarðar er staðsett í miðbænum við torgið og smábátabryggjuna. Öll þjónusta, afþreying og söfn eru í 5-10 mínútna göngufæri. Sunnan við snjóflóðavarnagarðinn (Stóra bola) er annað svæði fyrir þá sem kjósa ró og frið og þaðan er stutt á golfvöllinn, í hesthúsabyggð og fuglavarp. Um 10 mínútna gangur er niður í miðbæ frá svæðinu við snjóflóðavarnargarðinn.
VERÐ :
- Fullorðnir: 1.600 kr.
- Eldri borgarar og öryrkir: 1.380 kr.
- Frítt fyrir 16 ára og yngri
- Rafmagn: 1.400 kr.
- Þvottavél; 600 kr.
- Þurrkari: 600 kr.
Gæludýr eru leyfð á svæðinu ef þau eru í taumi og eru ekki með ónæði.
Gott eldhús er í aðstöðuhúsi og 2 sturtur.
Aðgengi fyrir fatlaða
Umsjónarmaður Guðmundur Ingi sími 663-5560
Netfang þjónustuaðila: gistihusjoa@gmail.com
Upplýsingamiðstöð Fjallabyggðar sími: 464-9215