Um miðjan mánuð tekur sumri að halla og daginn að stytta. Um leið fer að bera á haustlitum í náttúrunni og hægt er að fara í berjamó. Hafðu í huga að þú þarft leyfi landeiganda ef þú vilt tína meira en “bara upp í þig.” Ágústkvöldin geta verið einstaklega notaleg þegar enn er hlýtt í veðri en dimmt verður á kvöldin.
Mælum með að keyra Norðurstrandarleið í fallegu haustlitunum. Fara í allskonar fjallgöngur og borða ber í leiðinni.
Hvað þarf ég að taka með?
- Flíspeysa/létt ullarpeysa
- Létt lög af fötum (síðermaboli, létta jakka o.þ.h.)
- Regn-/vindheldur jakki og buxur
- Sterkir gönguskór með góðum sóla
- Sólgleraugu
- Vettlingar
- Trefill
- Húfa
- Hlý undirföt/ullarnærföt (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
- Vatnsheldir gönguskór (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
- Hlýir sokkar eða göngusokkar (sérstaklega ef ferðinni er heitið inn á hálendi eða í fjallgöngur)
- Sundföt
- Fljótþornandi handklæði (sérstaklega ef farið er í náttúrulaugar og uppsprettur – hægt er að leigja handklæði í flestum sundlaugum)
- Skordýrafælur/flugnanet
- Augnhlíf/svefngrímu
- Sólavörn