Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Eyjafjarðarsveit

Eyjafjarðarsveit

Verkefni 1: Edda risakusa

Edda, listaverk eftir Beate Stormo, hefur verið sett upp í námunda við Smámunasafn Sverris Hermannssonar. Mikilvægt er að halda áfram með uppbyggingu í kringum Eddu með tilliti til bætts aðgengis, aukins öryggis gangandi vegfarenda og með það fyrir sjónum að tengja saman með gönguleið þá ferðaþjónustu sem á svæðinu er (Smámunasafnið, Búvélasafn Búsögu og Saurbæjarkirkju). Þá er nauðsynlegt að koma upp upplýsingarskiltum til þess að efla upplifun ferðamanna.
Helstu verkliðir: Hönnun á svæði, stígagerð, upplýsingaöflun og skiltagerð.

Verkefni 2: Hjóla- og gönguleiðir

Kortleggja, merkja, útbúa lýsingar og hnitsetja hjóla- og gönguleiðir í Eyjafjarðarsveit bæði innan sveitar og í tengslum við leiðir yfir í nágrannasveitafélög. Markmiðið er að nýta þann gríðarlega auð sem landið hefur að bjóða er kemur að útivist og bjóða þannig bæði ferðamönnum og íbúum svæðisins uppá heilsusamlega og góða afþreyingu. Þá er með verkefninu stefnt að því að Eyjafjörður eflist sem áfangastaður ferðamanna sem vilja dvelja á svæðinu til lengri tíma. Sveitarfélagið hefur í samstarfi við Ferðamálafélag Eyjafjarðarsveitar merkt upp allt að 100 km af leiðum sem hægt er að ráðast í að merkja án mikils fyrirvara.
Helstu verkliðir: Stikun og hnitsetning hjóla- og gönguleiða. Leiðarlýsing og myndefni. Koma leiðum á framfæri.

Verkefni 3: Áningarstaðir

Efla umferðaröryggi og auka aðsókn ferðamanna að svæðinu. Skortur er á áningarstöðum við vegkerfi í sveitarfélaginu og mikilvægt að efla það til að beina umferð vegfarenda á örugga staði og þangað sem þeir hafa heimild til að vera. Áningarstaðir verða byggðir upp í tengslum við áhugaverða staði, upphaf gönguleiða og aðra staði sem vert er að stoppa á. Helstu verkliðir: Kortlagning áningarstaða, jarðvegsframkvæmdir, gatnagerð, bekkir og merkingar.

Verkefni 4: Garðsárreitur

Garðsárreitur er falin perla í norðanverðri Eyjafjarðarsveit. Markmið verkefnisins er að auka aðgengi almennings og ferðalanga að skógræktinni og gljúfrinu sem þar er. Byggja upp útsýnispall á gljúfurbrúninni sem falið er í skógarreitnum, útbúa góð bílastæði við reitinn og bæta gönguleiðir að útsýnispallinum.
Helstu verkliðir: Bílastæði (jarðvegsframkvæmd.) Endurbætur og fjölgun stíga. Bygging útsýnispalls.

Verkefni 5: Útivistarstígur í Eyjafjarðarsveit

Útivistastígurinn milli Hrafnagils og Akureyrar hefur sýnt sig og sannað fyrir íbúa svæðisins, eflt öryggi á svæðinu og opnað fjölmarga möguleika til útiveru og bætt stöðu ferðaþjónustuaðila sem við nálægð hans búa. Mikilvægt er að halda áfram með uppbyggingu stígsins og fara þar austur fyrir Eyjafjarðará um miðbraut og norður með Eyjafjarðarbraut í átt til Akureyrar aftur og búa þannig til öruggan og öflugan útivistahring sem í leið mun fara farm hjá fjölda þjónustuaðila. Markmiðið er að efla öryggi gangandi vegfarenda, vekja áhuga á svæðinu, stórauka tekjumöguleika ferðaþjónustuaðila á svæðinu og tengja svæðið við nýjan hjóla- og göngustíg sem leggja á út að Svalbarðsströnd.
Helstu verkliðir: Samningar við landeigendur, hönnun á stíg, jarðvegsframkvæmdir og gatnagerð.