Skagafjörður
Verkefni 1: Staðarbjargavík
Bætt aðgengi í Staðarbjargavík við Hofsós með gerð útsýnispalla, stíga og stiga í með handriði. Markmið verkefnisins er að bæta aðgengi, stýra umferð um svæðið, bæta öryggi ferðamanna og vernda svæðið fyrir átroðningi.
Helstu verkþættir: Hönnun og deiliskipulagi er lokið við Staðarbjargavík. Næstu skref eru framkvæmdir við stígagerð, byggingu útsýnispalla og stiga niður í björgin.
Verkefni 2: Hólar í Hjaltadal
Uppbygging hins sögulega staðar Hóla í Hjaltadal sem áfangastaðar fyrir ferðamenn. Markmiðið er að bæta vegvísa, gönguleiðir, upplýsingagjöf, bílastæði, salernisaðstöðu, sem og að vernda minjar og náttúru.
Helstu verkþættir: Fyrsti fasi er hönnunarvinna sem staðið hefur yfir og næsti fasi eru framkvæmdir á svæðinu.
Verkefni 3: Glaumbær
Úrbætur á aðkomu ferðamanna í Glaumbæ. Markmiðið er að bæta aðkomu ferðamanna í Glaumbæ með það að leiðarljósi að bæta öryggi ferðamanna og annarra vegfarenda um svæðið.
Helstu verkliðir: Deiliskipulag og hönnun bílastæða við Glaumbæ og síðar framkvæmdir á verkinu.
Verkefni 4: Kakalaskáli
Áframhaldandi uppbygging á hinum fjölfarna ferðamannastað Kakalaskála. Markmiðið er bætt aðgengi og áframhaldandi uppbygging á svæðinu í kringum Kakalaskála.
Helstu verkþættir: Gerð göngustíga, merkingar, hönnun og gerð nýrra listaverka o.fl.
Verkefni 5: Austurdalur
Bæta aðgengi og aðstöðu í Austurdal í Skagafirði, sem er mikil náttúruperla sem þarf að varðveita og bæta aðgengi að. Markmið verkefnisins er bætt öryggi við flutningskláf yfir Eystri-Jökulsá á Skatastöðum, gerð bílastæða, göngustíga og upplýsingaskilta.
Helstu verkliðir: Verkið verður unnið í tveimur hlutum. Fyrst hönnunarvinna og síðar framkvæmdir.