Aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands 2020
Markaðsstofa Norðurlands boðar til aðalfundar þriðjudaginn 26. maí 2020 kl. 13:00-14:30. Fundurinn verður haldinn í fjarfundi og skráðir þátttakendur fá hlekk á fundarkerfi.
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar
- Afgreiðsla ársreiknings
- Afgreiðsla fjárhagsáætlunar
- Stjórnarkjör
- Kjör endurskoðenda
- Starfshættir stjórnar
- Önnur mál
Stjórnarmenn eru kosnir á aðalfundi stofnunarinnar. Stjórn stofnunarinnar er skipuð fimm mönnum og tveimur varamönnum. Miða skal við að tveir stjórnarmenn og einn varamaður komi af Norðurlandi vestra og þrír stjórnarmenn og einn til vara frá Norðurlandi eystra. Stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára í senn. Varamenn eru kosnir til eins árs í senn. Annað hvert ár skal kosið um tvo stjórnarmenn en hitt árið um þrjá stjórnarmenn og er það raunin í ár.
Framboð frá samstarfsfyrirtækjum til stjórnar þurfa að koma fram í síðasta lagi 7 dögum fyrir aðalfund og eru áhugasamir beðnir að tilkynna framboð til framkvæmdastjóra.
Á aðalfundi fer hvert samstarfsfyrirtæki Markaðsstofunnar með atkvæði samkvæmt sínum gjaldflokki, 1 atkvæði fyrir lægsta flokk, 2 atkvæði fyrir næstlægsta flokk og svo framvegis upp í 5 atkvæði fyrir efsta gjaldflokk. Skilyrði þess að samstarfsfélög Markaðsstofu Norðurlands geti nýtt atkvæði sín á aðalfundi er að þau séu skuldlaus við Markaðsstofu Norðurlands.
Skráning á aðalfund fer fram hér fyrir neðan.
https://www.northiceland.is/is/markadsstofan/frettir-af-innra-starfi/adalfundur
Nánari upplýsingar um MN er að finna hér http://www.nordurland.is/is/markadsstofan/frettir-af-innra-starfi
Skipulagsskrá MN má sjá hér www.nordurland.is/static/files/PDF/Starfsemi/markadsstofanordurlands-skipulagsskra-20.mai14.pdf
Staðfest breyting frá Sýslumanninum á Sauðárkróki v/ Markaðsstofu Norðurlands 20.06.2014 má sjá hér https://www.northiceland.is/static/files/PDF/Starfsemi/auglysing-breyting-markadsstofa-nordurlands.pdf