Framtíð ferðaþjónustu á Norðurlandi - Upptaka frá fundi
Þriðjudaginn 1. mars héldu KPMG fundi í samstarfi við Markaðsstofu Norðurlands, á Akureyri og í Varmahlíð. Hér má sjá upptöku frá fundinum á Akureyri.
09.03.2022
Þriðjudaginn 1. mars héldu KPMG fundi í samstarfi við Markaðsstofu Norðurlands, á Akureyri og í Varmahlíð. Sérfræðingar KPMG og MN ræddu um tækifæri í norðlenskri ferðaþjónustu, ítarlega greiningu á ferðþjónustu landshlutans og fjölluðu um möguleika greinarinnar tengdum sjálfbærni.
Hér að neðan má sjá upptöku frá fundinum á Akureyri.
Dagskrá fundarins:
- Tækifæri í norðlenskri ferðaþjónustu
- Staða ferðaþjónustunnar og helstu áskoranir fyrirtækja í greininni
- Niðurstaða könnunar og greininga KPMG
- Hvaða tækifæri og lausnir eru í boði fyrir fyrirtækin í greininni til að mæta þeim áskorunum sem framundan eru?
- Sjálfbærni og ferðaþjónustan – hvar liggja möguleikarnir?