Víðimýrarkirkja er ein af örfáum varðveittum torfkirkjum landsins. Í upphafi 20. aldar var tvísýnt um afdrif hennar, en síðar áttuðu menn sig á því að hér var um ómetanleg menningarverðmæti að ræða. Þjóðminjasafn Íslands hefur staðið fyrir viðgerðum á kirkjunni. Kirkjan var reist árið 1834, hún er með torfveggjum til hliðanna og torfþekju en timburstöfnum í bak og fyrir.
Opnunartími
1. júní - 31. ágúst: þriðjudaga-sunnudaga 12:00-18:00, lokað á mánudögum.
Utan auglýsts opnunartíma er opið eftir samkomulagi við Byggðasafn Skagfirðinga.
Aðgangseyrir 2023 og 2024:
Fullorðnir (18 ára og eldri): 1.000 kr.
Hópar (6+), námsmenn, eldri borgarar og öryrkjar: 700 kr.
Börn (17 ára og yngri): frítt
Sameiginlegur aðgangsmiði í Víðimýrarkirkju og Glaumbæ :
Fullorðnir (18 ára og eldri): 2.300 kr.
Hópar (6+), námsmenn, eldri borgarar og öryrkjar: 2.000 kr.
Börn (17 ára og yngri): frítt
Miðana má kaupa í Víðimýrarkirkju eða í Glaumbæ. Gilda fyrir samdægurs heimsókn í Glaumbæ og Víðimýrarkirkju.
Séropnun utan almenns opnunartíma: 15.000 + aðgangseyri.
ATH. Nauðsynlegt að bóka með fyrirvara og aðgangseyrir greiðist að auki.