Hólmatungur
Hólmatungur er mjög gróskumikið svæði í Vatnajökulsþjóðgarði og þar eru margar fagrar stuðlabergsmyndanir. Göngusvæðið á milli Hljóðakletta og Hólmatungna meðfram Jökulsá á Fjöllum er með því allra fegursta á landinu.
Óteljandi lindir spretta upp í Hólmatungum og vatnið fellur af stalli niður í Jöklu. Þar er einnig að finna Gloppuhelli í Gloppu, sem er sérstök náttúrusmíð.
Frá bílastæði er stutt ganga á útsýnispall þaðan sem Hólmatungur og gljúfrin blasa við. Um Hólmatungur liggja merktar gönguleiðir, sem sumar tengjast leiðum frá Dettifossi og niður í Ásbyrgi.