Fara í efni

    Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

    Tjaldsvæðið v/ Hegranes

    - Svefnpokagisting

    Einkatjaldstæði fyrir hópa!  Frábært svæði fyrir ættarmótið, afmælið, brúðkaupið eða vinahittinginn.

    Húsið sem er um 270 fm, tekur um 110 manns í sæti (borð og stólar eru á staðanum). Í húsinu eru fjögur salerni, eldhús með uppþvottavél, ískáp, eldavél og kaffikönnu. Í húsinu eru dýnur og gistileyfi fyrir 20 manns.

    Í kringum húsið er stærðar lóð sem nýtist sem tjaldstæði fyrir hópinn og rafmagn sem hægt er að nýta til að tengja hýsi sem þess þurfa.

    Stutt er í innigistingu í nágrenninu, svo ef einhverjir í hópnum vilja ekki vera í tjöldum eða á dýnum er hægt að leigja frábær herbergi bæði í Keldudal, Ríp og á Hellulandi en aðeins örfáir km eru í alla þessa ferðaþjónustuaðila. 

    Verð 2020:
    Hópatjaldsvæði með inniaðstöðu (Innifalið tjaldstæði, inniaðstaða og rafmagn. Þrif greiðast aukalega).
    Helgin:  75.000 kr. Eða 95.000 kr með þrifum
    Virkur dagur:  35.000 kr. Eða 50 þús kr. Með þrifum.

    Tjaldsvæðið v/ Hegranes

    Tjaldsvæðið v/ Hegranes

    Einkatjaldstæði fyrir hópa!  Frábært svæði fyrir ættarmótið, afmælið, brúðkaupið eða vinahittinginn. Húsið sem er um 270 fm, tekur um 110 manns í sæti
    Leaflet | © OpenStreetMap contributors

    Aðrir (2)

    Karuna Litla Gröf 551 Sauðárkrókur 6181917
    Keldudalur Hegranesi 551 Sauðárkrókur 846-8185