Fara í efni

    Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

    Tökum flugið - Ráðstefna um flugmál

    Markaðsstofa Norðurlands og Flugklasinn Air 66N munu halda ráðstefnu um flugmál á Akureyri þann 26. apríl n.k

    Markaðsstofa Norðurlands og Flugklasinn Air 66N munu halda ráðstefnu um flugmál á Akureyri þann 26. apríl n.k. Ráðstefnan verður haldin í Hofi kl. 12:30 – 16:00.

    Fjallað verður m.a. um stöðuna á uppbyggingu Akureyrarflugvallar, reynslu af flugi frá Hollandi og framtíðarhorfur í millilandaflugi á Akureyri. Einnig verða fulltrúar frá Niceair með kynningu á áformum félagsins.

    Við hvetjum alla áhugasama að taka daginn frá, en nánari dagskrá verður auglýst síðar.