Fara í efni

    Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

    Flug til framtíðar - skráning á ráðstefnu

    Skráning á ráðstefnu um flugmál mánudaginn 18. nóvember. Fundurinn verður haldinn í Hofi á Akureyri, kl. 13:00-16:00.

    Markaðsstofa Norðurlands stendur fyrir ráðstefnu um flugmál mánudaginn 18. nóvember. Fundurinn verður haldinn í Hofi á Akureyri, kl. 13:00-16:00.

    Á ráðstefnunni verður fjallað um millilandaflug um Akureyrarflugvöll, áhrif þess á ferðaþjónustu og samfélagið, auk þess sem rætt verður um uppbyggingu flugvallarins.

    Smelltu hér til að skrá þig

    Dagskrá:
    Ráðstefnan hefst á ávarpi frá Lilju Dögg Alfreðsdóttur, ráðherra ferðamála.
    Í fyrri hluta ráðstefnunnar, sem fer fram á ensku, verður fjallað um þróun áfangastaðarins og þau tækifæri sem opnast á erlendum mörkuðum með beinu millilandaflugi. Meðal þeirra sem taka til máls eru:
    • Wietse Dijkstra, Product- and destination-developer in Arctic Tourism
    • Chris Hagan, UK representative for Visit North Iceland
    • Clive Stacey, Managing Director at Discover the World
    • Andrea Godfrey, Head of Regent Holidays
    Einnig koma skilaboð frá easyJet um árangurinn fyrsta árið.
    Í seinni hluta ráðstefnunnar, sem fram fer á íslensku, verður fjallað um uppbyggingu flugvallarins og hvaða áhrif beint millilandaflug hefur á fyrirtæki og samfélag. Þau sem taka til máls eru:
    • Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrarbæjar
    • Sigrún Björk Jakobsdóttir, framkvæmdastjóri Isavia Innanlandsflugvellir ehf
    • Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við Háskólann á Akureyri
    Í lokin mun Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF, stýra pallborðsumræðum. Í pallborðinu munu sitja fulltrúar stærri framboða í Norðausturkjördæmi.
    Fundarstjóri er Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands.

     

    Smelltu hér til að skrá þig