Fréttaskot 27.09.2016 - Vestnorden, FAM, Uppskeruhátíð og fleira
Vestnorden er í næstu viku og markaðsstofan tekur þátt að venju. Við viljum hvetja þá sem ekki hafa sent okkur uppfærða rafræna bæklinga að gera það hið fyrsta. Við erum með usb lykla á sýningunni sem við afhendum ferðasöluaðilum með frekari upplýsingum og þar er gott að hafa sem flesta bæklinga á rafrænu formi frá samstarfsfyrirtækjum. Við getum ekki tekið við myndböndum þar sem þau eru of stór.